mánudagur, 7. apríl 2008

Hvaða tunnu eigum við að fá?

Endurvinnslutunnur hafa mikið verið í umræðunni undanfarið. Nokkrir aðilar bjóða upp þessa þjónustu en engin er þó nákvæmlega eins.

Þrír aðilar bjóða upp á endurvinnslutunnur á Höfuðborgarsvæðinu: Reykjavíkurborg, Íslenska gámafélagið og Gámaþjónustan. Persónulega er ég hrifnari af framtaki einkaaðilanna. Þjónusta þeirra er mjög sambærileg en þar sem Græna tunnan frá Íslenska Gámafélaginu er ódýrari (Munurinn er þó aðeins 480 kr. á ári) þá er hún sigurvegarinn í þessari könnun (Hvað er samt málið með heimasíðuna þeirra?).


Á Grænlandi er hægt er að finna skýran samanburð á tunnunum þremur.


*Mynd af tunnum tekin af www.rvk.is

Engin ummæli: