miðvikudagur, 16. apríl 2008

Endurvinnsla á heimilinu


Þetta gengur skemmtilega brösulega að breyta heimilinu í grænt heimili. Við lendum á alls kyns veggjum. Undanfarnar vikur höfum við verið að leita að hentugum ílátum til að flokka sorp. Framboðið er vægast sagt lélegt. Náttúra er með mjög góðar tunnur fyrir lífrænan úrgang en þær raðast illa hjá okkur. Ikea er með mjög spennandi lausn en hún er búin að vera uppseld í allt vor. Rekstrarvörur eiga einhvers konar kerfi en þar hefur enginn svarað póstum frá mér og hef ég því ákveðið að gefa þá upp á bátinn. Enn flokkum við því heimilissorpið og lífrænasorpið saman og hendum því í svörtu ruslatunnuna. Blöð, fernur og annað flokkum við í poka og kassa og förum með í grendargámana.

Engin ummæli: