þriðjudagur, 22. apríl 2008

Endurvinnslutunnur í prófun

Íslenska gámafélagið hafði samband við mig í kjölfar bréfs þar sem ég var að kynna bloggið og bauð okkur vörur sínar til prófunar. Við þáðum það enda einn tilgangur bloggsins að kanna sem flesta möguleika til að auðvelda fjölskyldum að snúa við blaðinu í umhverfismálum.
Íslenska gámafélagið sendu okkur grænu tunnuna sem ég hef fjallað um áður, moltugerðartunnu og ruslafötu og lífræna poka fyrir heimilissorp.
Þetta kom okkur á mikið skrið, við erum strax farin að nota grænu tunnuna. Flokkum núna pappír í pokann sem við fengum frá Fréttablaðinu um helgina. Flokkum fernur í plastpoka sem fara svo í grænu tunnuna. Setjum allt lífrænt í nýju ruslafötuna osfrv.



Við finnum strax mun með tilkomu grænu tunnunar en pappírsmagnið sem fellur frá venjulegu heimili er ótrúlegt. Því er einnig haldið fram að með því að flokka lífrænt sorp í moltugerð minki sorpið um 25-35%. Við stefnum nú á að standa okkur það vel að við getum lagt svörtu ruslatunnunni og fengið græna tunnu frá borginni í staðin. Hún er tæmd á tveggja vikna fresti og er mun ódýrari.

Agnes hjá Íslenska Gámafélaginu benti okkur á tilraun Stykkishólmsbæjar í endurvinnslu. Allir íbúar bæjarins fengu afhentar þrjár sorptunnur í janúar; eina græna tunnu, eina brúna fyrir lífrænt sorp og eina hefðbundna. Allir bæjarbúar fengu tilsögn í endurvinnslu og eftir fyrstu mánuðinn var 95% þáttaka í verkefninu en skv. könnun á heimasíðunni er 80% þáttaka þessa dagan. Þetta er því hægt!
Á vef Stykkishólmsbæjar eru góðir linkar fyrir moltugerðina. Við erum að lesa þessa bæklinga í þaula en við búum því miður ekki við sama lúxus og Stykkishólmsbúar að vera með moltugerðarstöð.



Við munum fjalla reglulega um reynslu okkar af vörunum frá Íslenska gámafélaginu og bendum öðrum fyrirtækjum á að hafa samband ef þau vilja að við prófum vörur þeirra.

Engin ummæli: