fimmtudagur, 24. apríl 2008

Er hægt að hætta að nota plastpoka?

Í þessu græna ferli okkar fer maður sífellt að spá í fleiri og fleiri hluti. Við höfum t.d. mikið rætt um pappírsmagnið sem kemur inn um lúguna og plastpokanna sem maður tekur í búðum.
Við erum búin að vera prófa okkur aðeins áfram með að taka poka með okkur að versla. Við keyptum mjög góða endurnýtanlega poka í IKEA um daginn sem við höfum verið að prófa að nota undanfarið.
Þetta er auðveldara en maður heldur. IKEA pokarnir kosta aðeins 60 kr og borga sig því upp í einni ferð (Bónus selur líka poka en þeir eru svo ljótir að það er ekki hægt að nota þá). Það eiga einnig margir poka úr bómull sem merktir eru búðum, skólum osfrv. Það er einnig hægt að kaupa fína poka á netinu t.d. BAGGU sem hafa fengið töluverða umfjöllun í tískutímaritum.
Við höfum svo verið að prófa okkur áfram með poka í ruslið sem brotna niður í náttúrunni unna úr sterkju. Þá er hægt að fá á nokkrum stöðum í Reykjavík og Plastprent hefur verið að prófa sig áfram í framleiðslu á þannig pokum.
Skelli hérna með ágætis myndbandi sem ég hvet lesendur til að skoða, þetta vekur mann til umhugsunar...


Hlekkir:
http://www.reusablebags.com/

http://baggubag.com/

http://www.envirosax.com/

http://store.chicobag.com/product/original-chicobag

http://www.ecobags.com/

Engin ummæli: