miðvikudagur, 9. apríl 2008

Hjólað í vinnuna

Ein besta og einfaldasta leið til að spara pening og verða umhverfisvænni er að hjóla í vinnuna. Við seldum annan fjölskyldubílinn og annað okkar hjólar oftast nær í vinnuna, stundum bæði, annars förum við saman á einum bíl.
Flest okkar eiga hjól í skúrnum eða bakgarðinum og er um að gera að nota þau hjól. Það þarf als engin keppnishjól til að hjóla í vinnuna. Ef ekkert hjól er á heimilinu þá mælum við með viðurkenndum hjólabúðum og þektum merkjum. Það að hafa ábyrgan aðila til að sinna viðhaldi á hjólinu á fyrstu vikunum er ómetanlegt. Góð hjól auka einnig ánægjuna við að hjóla og gera þessa ákvörðun miklu mun léttari. Við mælum því með verslunum eins og Markinu og Erninum eða GÁP og Útilífi.
Fyrir innabæjarhjólreiðar er best að fá sér einfalt og traust hjól, svokölluð comfort hjól og hybrid hjól eru mjög hentug. Þau eru með þægilega ásetu og yfirleitt með tiltölulega sléttum dekkjum. Það er svo hægt að færa sig yfir í meiri græjur seinna meir. Það hefur reynst okkur vel að fjárfesta í góðum brettum, helst sem fest eru með teinum (Ekki smellubretti). Á hjólunum okkar erum við einnig með góða lása, drykkjarbrúsa, pumpu og hnakktösku með útbúnaði til að skipta um dekk ef springur og slöngur. Það getur einnig aukið ánægju að hafa einfalda hjólatölvu svo hægt sé að fylgjast með hraða og fjölda km hjólaða.

Hjálmur, ljós og endurskinsmerki eru einnig nauðsynleg þrátt fyrir að nú sé bjart allan daginn.
Við munum fjalla mun meira um hjólreiðar á næstu vikum sérstaklega í aðdraganda "Hjólað í vinnnuna" sem stendur frá 7.-21.maí.

1 ummæli:

Halldor sagði...

Að hjóla í vinnunna er ekki einungis gott fyrir náttúruna og fjárhaginn, heldur fyrir hausinn líka. Fátt betra eftir langan vinnudag en að fá sér smá hjólatúr til að losna við stress dagsins, og ekki er verra að maður mætir ferskur í vinnuna á morgnana.