Gámaþjónustan býður eins og áður sagði upp á endurvinnslutunnu. Þeir bjóða einnig upp á tunnur til moltugerðar, poka fyrir lífrænt sorp ofl.
Það er klárlega hægt að verða sér út um þessa hluti þó svo að það geti verið ansi flókið oft á tíðum.
Rakst á vef Landverndar að hægt væri að skrá sig í visthópa sem Landvernd kennir á 12 vikum hvernig heimili geta orðið vistvæn. Fylgt er skrefunum úr bæklingnum Skref fyrir skref sem er ný-endurútgefinn. Áhugavert... Líklegt að við skráum okkur og leyfum lesendum að fylgjast með!
Annað námskeið sem okkur langar til að benda á er sparakstursnámskeið Heklu, hvet sem flesta til að nýta sér það.
þriðjudagur, 29. apríl 2008
mánudagur, 28. apríl 2008
Umhverfissýning um helgina
Fórum á Dag umhverfisins í Perlunni um helgina, hjólandi auðvitað.
Ekki nógu spennandi sýning og allt of lítið af fólki. Þarna voru þó ágætis básar inn á milli.
Sorpa var að gefa flokkunarpoka, Landssamband hjólreiðamanna bauð upp á hjólaviðgerðir (BÆK Doktor) og Fuglaverndarfélag Íslands gaf góð ráð um garðfugla og fuglavernd.
Íslenska Gámafélagið var að kynna fría endurvinnslutunnu í tvo mánuði sem mér sýndist margir vera að taka.
Landvernd var einnig að kynna nýjan "Skref fyrir skref" bækling! Lítur bara bel út, við notum þennan bækling mikið til að still okkur af og til að fá hugmyndir.
Þarna var einnig verið að kynna ræstingavörur, leikföng, fatnað ofl.
Maður fær það samt alltaf á tilfinninguna að við séum áratugum á eftir Evrópu í umhverfisvernd.
Ekki nógu spennandi sýning og allt of lítið af fólki. Þarna voru þó ágætis básar inn á milli.
Sorpa var að gefa flokkunarpoka, Landssamband hjólreiðamanna bauð upp á hjólaviðgerðir (BÆK Doktor) og Fuglaverndarfélag Íslands gaf góð ráð um garðfugla og fuglavernd.
Íslenska Gámafélagið var að kynna fría endurvinnslutunnu í tvo mánuði sem mér sýndist margir vera að taka.
Landvernd var einnig að kynna nýjan "Skref fyrir skref" bækling! Lítur bara bel út, við notum þennan bækling mikið til að still okkur af og til að fá hugmyndir.
Þarna var einnig verið að kynna ræstingavörur, leikföng, fatnað ofl.
Maður fær það samt alltaf á tilfinninguna að við séum áratugum á eftir Evrópu í umhverfisvernd.
Blogged with the Flock Browser
föstudagur, 25. apríl 2008
Frh. Sparperur
www.orkusetur.is er annars skemmtilegur vefur, við höfum sérstaklega skoðað hann með tilliti til eldsneytiseyðslu.
Blogged with the Flock Browser
fimmtudagur, 24. apríl 2008
Sparperur
Á Grænlandi erum við að stíga okkur fyrstu skref í að nota sparperur. Í upphafi sögðum við að við ætlum okkur hægt í sakirnar og verða græn hægt en vel. Við höfum því undanfarið keypt sparperur í stað hefðbundinna í stað þess að fara í fjárfestingu að skipta öllum út. Reynsla okkar af þessum perum er mjög góð. Þær er hægt að fá í öllum mögulegum stærðum og gerðum, meira að segja í halogen ljós.
Flestar perurnar höfum við keypt í IKEA en einnig í Egg og Húsasmiðjunni.
Perurnar endast margfalt lengur en hefðbundnar perur, 6-15 x lengur, auk þess sem að þær eyða margfalt minna rafmagni.
Perurnar innihalda reyndar skaðleg efni og því ætti að ganga vel frá perum sem brotna og auðvitað að fara með allar perur í endurvinnslu.
Blogged with the Flock Browser
Er hægt að hætta að nota plastpoka?

Við erum búin að vera prófa okkur aðeins áfram með að taka poka með okkur að versla. Við keyptum mjög góða endurnýtanlega poka í IKEA um daginn sem við höfum verið að prófa að nota undanfarið.
Þetta er auðveldara en maður heldur. IKEA pokarnir kosta aðeins 60 kr og borga sig því upp í einni ferð (Bónus selur líka poka en þeir eru svo ljótir að það er ekki hægt að nota þá). Það eiga einnig margir poka úr bómull sem merktir eru búðum, skólum osfrv. Það er einnig hægt að kaupa fína poka á netinu t.d. BAGGU sem hafa fengið töluverða umfjöllun í tískutímaritum.

Við höfum svo verið að prófa okkur áfram með poka í ruslið sem brotna niður í náttúrunni unna úr sterkju. Þá er hægt að fá á nokkrum stöðum í Reykjavík og Plastprent hefur verið að prófa sig áfram í framleiðslu á þannig pokum.
Skelli hérna með ágætis myndbandi sem ég hvet lesendur til að skoða, þetta vekur mann til umhugsunar...
Hlekkir:
http://www.reusablebags.com/
http://baggubag.com/
http://www.envirosax.com/
http://store.chicobag.com/product/original-chicobag
http://www.ecobags.com/
þriðjudagur, 22. apríl 2008
Endurvinnslutunnur í prófun
Íslenska gámafélagið sendu okkur grænu tunnuna sem ég hef fjallað um áður, moltugerðartunnu og ruslafötu og lífræna poka fyrir heimilissorp.
Þetta kom okkur á mikið skrið, við erum strax farin að nota grænu tunnuna. Flokkum núna pappír í pokann sem við fengum frá Fréttablaðinu um helgina. Flokkum fernur í plastpoka sem fara svo í grænu tunnuna. Setjum allt lífrænt í nýju ruslafötuna osfrv.
Við finnum strax mun með tilkomu grænu tunnunar en pappírsmagnið sem fellur frá venjulegu heimili er ótrúlegt. Því er einnig haldið fram að með því að flokka lífrænt sorp í moltugerð minki sorpið um 25-35%. Við stefnum nú á að standa okkur það vel að við getum lagt svörtu ruslatunnunni og fengið græna tunnu frá borginni í staðin. Hún er tæmd á tveggja vikna fresti og er mun ódýrari.
Agnes hjá Íslenska Gámafélaginu benti okkur á tilraun Stykkishólmsbæjar í endurvinnslu. Allir
íbúar bæjarins fengu afhentar þrjár sorptunnur í janúar; eina græna tunnu, eina brúna fyrir lífrænt sorp og eina hefðbundna. Allir bæjarbúar fengu tilsögn í endurvinnslu og eftir fyrstu mánuðinn var 95% þáttaka í verkefninu en skv. könnun á heimasíðunni er 80% þáttaka þessa dagan. Þetta er því hægt!

Á vef Stykkishólmsbæjar eru góðir linkar fyrir moltugerðina. Við erum að lesa þessa bæklinga í þaula en við búum því miður ekki við sama lúxus og Stykkishólmsbúar að vera með moltugerðarstöð.
Við munum fjalla reglulega um reynslu okkar af vörunum frá Íslenska gámafélaginu og bendum öðrum fyrirtækjum á að hafa samband ef þau vilja að við prófum vörur þeirra.
föstudagur, 18. apríl 2008
Vöknun í umhverfismálum
Grænland ætlar að reyna að nálgast svona tösku og skrifa nánar um hana.
Endilega skiljið eftir comment ef þið eruð að nota einhverjar sniðugar lausnir við flokkun.
fimmtudagur, 17. apríl 2008
Boðskort á Dag umhverfisins
Hjólað í vinnuna

Var boðaður á skemmtilegan fund með vinnuhópi "Hjólað í vinnuna".
Fékk að fljóta með Fjallahjólaklúbbnum og Landsamtök hjólreiðamanna.
Hjólað í vinnuna er fullkomið tækifæri til að rífa sig upp og prófa vistvænni og heilbrigðari samgöngumáta. Við ætlum að reyna að gera viðburðinn skemmtilegri en áður sem vonandi tekst. Bendi fólki á ótrúlega merkilegt kort sem sýnir hve stuttar vegalengdirnar í Reykjavík eru í raun og veru. ÍSÍ hefur einnig gefið út nettan bækling um hjólreiðar, þar er að finna ágætis æfingaplan og leiðbeiningar.
Hjólað í vinnuna hefst fimmtudaginn 7.maí og stendur til 21.maí.
Í kvöld kl.20.00 fimmtudaginn 17.apríl er viðgerðanámskeið fyrir byrjendur í Fjallahjólaklúbbnum sem er öllum opið, tilvalið að nota það til að fara yfir hjólið fyrir vorið.
Þriðjudagskvöldið 6. maí hefjast svo kvöldferðir Fjallahjólaklúbbsins sem farnar eru alla þriðjudaga í sumar kl.20.00 frá Mjódd, þar eru allir velkomnir.
Fékk að fljóta með Fjallahjólaklúbbnum og Landsamtök hjólreiðamanna.
Hjólað í vinnuna er fullkomið tækifæri til að rífa sig upp og prófa vistvænni og heilbrigðari samgöngumáta. Við ætlum að reyna að gera viðburðinn skemmtilegri en áður sem vonandi tekst. Bendi fólki á ótrúlega merkilegt kort sem sýnir hve stuttar vegalengdirnar í Reykjavík eru í raun og veru. ÍSÍ hefur einnig gefið út nettan bækling um hjólreiðar, þar er að finna ágætis æfingaplan og leiðbeiningar.
Hjólað í vinnuna hefst fimmtudaginn 7.maí og stendur til 21.maí.
Í kvöld kl.20.00 fimmtudaginn 17.apríl er viðgerðanámskeið fyrir byrjendur í Fjallahjólaklúbbnum sem er öllum opið, tilvalið að nota það til að fara yfir hjólið fyrir vorið.
Þriðjudagskvöldið 6. maí hefjast svo kvöldferðir Fjallahjólaklúbbsins sem farnar eru alla þriðjudaga í sumar kl.20.00 frá Mjódd, þar eru allir velkomnir.
miðvikudagur, 16. apríl 2008
Loftgæði og hjólreiðar

Svolítið furðulegt að hjóla í vinnuna í morgun. Mikið ryk og sandfok. Var sem betur fer með hjólagleraugun en fann samt fyrir rykinu í augunum þegar ég kom inn. Þegar ég svo opnaði síðuna okkar þá sá ég á loftgæðamælinum hér til hliðar (Fengin að láni frá Reykjavíkurborg) að loftgæðin eru mjög slæm í dag. Gaman að fylgjast með þessum mæli og hve loftgæðin eru misjöfn, eitthvað sem maður tekur sem sjálfsögðum hlut á Íslandi.
Endurvinnsla á heimilinu

Þetta gengur skemmtilega brösulega að breyta heimilinu í grænt heimili. Við lendum á alls kyns veggjum. Undanfarnar vikur höfum við verið að leita að hentugum ílátum til að flokka sorp. Framboðið er vægast sagt lélegt. Náttúra er með mjög góðar tunnur fyrir lífrænan úrgang en þær raðast illa hjá okkur. Ikea er með mjög spennandi lausn en hún er búin að vera uppseld í allt vor. Rekstrarvörur eiga einhvers konar kerfi en þar hefur enginn svarað póstum frá mér og hef ég því ákveðið að gefa þá upp á bátinn. Enn flokkum við því heimilissorpið og lífrænasorpið saman og hendum því í svörtu ruslatunnuna. Blöð, fernur og annað flokkum við í poka og kassa og förum með í grendargámana.
miðvikudagur, 9. apríl 2008
Vistvænn lífsstíll - umhverfissýning
Umhverfisráðuneytið, Úrvinnslusjóður og SORPA standa fyrir sýningunni Vistvænn lífsstíll í Perlunni 25. og 26. apríl næstkomandi. Þar verður fyrirtækjum, stofnunum og félögum gefinn kostur á að kynna vörur, starf og þjónustu er stuðla að vistvænum lífsstíl almennings. Sýningin á að vekja athygli fólks á þeim fjölmörgu vistvænu vörum og þeirri þjónustu sem nú þegar er hægt að nálgast til að viðhafa vistvænan lífsstíl.
Hjólað í vinnuna

Flest okkar eiga hjól í skúrnum eða bakgarðinum og er um að gera að nota þau hjól. Það þarf als engin keppnishjól til að hjóla í vinnuna. Ef ekkert hjól er á heimilinu þá mælum við með viðurkenndum hjólabúðum og þektum merkjum. Það að hafa ábyrgan aðila til að sinna viðhaldi á hjólinu á fyrstu vikunum er ómetanlegt. Góð hjól auka einnig ánægjuna við að hjóla og gera þessa ákvörðun miklu mun léttari. Við mælum því með verslunum eins og Markinu og Erninum eða GÁP og Útilífi.
Fyrir innabæjarhjólreiðar er best að fá sér einfalt og traust hjól, svokölluð comfort hjól og hybrid hjól eru mjög hentug. Þau eru með þægilega ásetu og yfirleitt með tiltölulega sléttum dekkjum. Það er svo hægt að færa sig yfir í meiri græjur seinna meir. Það hefur reynst okkur vel að fjárfesta í góðum brettum, helst sem fest eru með teinum (Ekki smellubretti). Á hjólunum okkar erum við einnig með góða lása, drykkjarbrúsa, pumpu og hnakktösku með útbúnaði til að skipta um dekk ef springur og slöngur. Það getur einnig aukið ánægju að hafa einfalda hjólatölvu svo hægt sé að fylgjast með hraða og fjölda km hjólaða.
Hjálmur, ljós og endurskinsmerki eru einnig nauðsynleg þrátt fyrir að nú sé bjart allan daginn.
Við munum fjalla mun meira um hjólreiðar á næstu vikum sérstaklega í aðdraganda "Hjólað í vinnnuna" sem stendur frá 7.-21.maí.
mánudagur, 7. apríl 2008
Hvaða tunnu eigum við að fá?

Þrír aðilar bjóða upp á endurvinnslutunnur á Höfuðborgarsvæðinu: Reykjavíkurborg, Íslenska gámafélagið og Gámaþjónustan. Persónulega er ég hrifnari af framtaki einkaaðilanna. Þjónusta þeirra er mjög sambærileg en þar sem Græna tunnan frá Íslenska Gámafélaginu er ódýrari (Munurinn er þó aðeins 480 kr. á ári) þá er hún sigurvegarinn í þessari könnun (Hvað er samt málið með heimasíðuna þeirra?).
Á Grænlandi er hægt er að finna skýran samanburð á tunnunum þremur.

*Mynd af tunnum tekin af www.rvk.is
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)