Sýnir færslur með efnisorðinu moltugerð. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu moltugerð. Sýna allar færslur

sunnudagur, 1. júní 2008

Ormar hjálpa við moltugerð

Rakst á skemmtilega og athyglsiverða umfjöllun um moltugerð með hjálp orma. Ormarnir flýta fyrir moltugerðinni með því einfaldlega að borða lífræna sorpið og skila því sem næringaríkum áburði. Mjög athyglisvert sem gaman væri að prófa. Ágætis umfjöllun um efnið á Wikipediu - Vermicompost, margir búa til orma-moltugerðina sjálfir úr ódýrum ílátum. Á YouTube er að finna fjölda myndbanda um efnið. Enda þennan stutta póst með ágætis myndbandi um wormery.

þriðjudagur, 29. apríl 2008

Gámaþjónustan, visthópar og sparakstursnámskeið

Gámaþjónustan býður eins og áður sagði upp á endurvinnslutunnu. Þeir bjóða einnig upp á tunnur til moltugerðar, poka fyrir lífrænt sorp ofl.
Það er klárlega hægt að verða sér út um þessa hluti þó svo að það geti verið ansi flókið oft á tíðum.
Rakst á vef Landverndar að hægt væri að skrá sig í visthópa sem Landvernd kennir á 12 vikum hvernig heimili geta orðið vistvæn. Fylgt er skrefunum úr bæklingnum Skref fyrir skref sem er ný-endurútgefinn. Áhugavert... Líklegt að við skráum okkur og leyfum lesendum að fylgjast með!
Annað námskeið sem okkur langar til að benda á er sparakstursnámskeið Heklu, hvet sem flesta til að nýta sér það.

miðvikudagur, 26. mars 2008

Sorpa



Sorpa er sífellt að bæta vefinn sinn um flokkun og endurvinnslu. Það sem er gaman að sjá á bæði vef Sorpu og Landverndar er hversu mikla áherslu þeir leggja á fræðslu fyrir börn. Það á án efa eftir að skila sér. Sífellt fleiri skólar fá Grænfánann, vonandi eiga þessi börn eftir að taka vandamálið traustari tökum en við.


Sorpa er með nýuppfærða flokkunartöflu sem hægt er að fá senda heim til sín. Einfaldlega sendið póst á sorpa@sorpa.is og biðjið um að fá senda flokkunartöflu. Þessi tafla á heima í hverju eldhúsi við flokkunaraðstöðuna. Þessi tafla hjálpar manni einnig mikið við að skipuleggja flokkunarstöð. Hvernig á ég að skipuleggja flokkunarstöðina, á ég að hafa margar ruslafötur, hvað má fara saman osfrv. Við munum fara mjög ítarlega í þetta ferli í næstu póstum. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur vef Sorpu vel því þar er mikið að finna. T.d. hvar næstu grendargáma er að finna og endurvinnslustöðvar. Þar er einnig að finna upplýsingar um jarðgerð fyrir þá sem hafa tækifæri og vilja til þess en Reykjavíkurborg gaf út bækling um jarðgerð sem þó virðist vera eitthvað kominn til ára sinna. Hann er engu að síður nokkuð góður sérstaklega svona á fyrstu skrefum heimilisjarðgerðar.