Grænland er flutt yfir á nýtt bloggkerfi. Nýja slóðin er www.graenland.wordpress.com
Sjáumst þar!
mánudagur, 16. febrúar 2009
sunnudagur, 1. júní 2008
Ormar hjálpa við moltugerð
Rakst á skemmtilega og athyglsiverða umfjöllun um moltugerð með hjálp orma. Ormarnir flýta fyrir moltugerðinni með því einfaldlega að borða lífræna sorpið og skila því sem næringaríkum áburði. Mjög athyglisvert sem gaman væri að prófa. Ágætis umfjöllun um efnið á Wikipediu - Vermicompost, margir búa til orma-moltugerðina sjálfir úr ódýrum ílátum. Á YouTube er að finna fjölda myndbanda um efnið. Enda þennan stutta póst með ágætis myndbandi um wormery.
laugardagur, 31. maí 2008
Sniðug lausn fyrir lífrænt sorp

Í upphafi vorum við mikið að velta fyrir okkur hvernig ílát ofl væru best til að flokk sorpið okkar.
Í dag erum við komin með þokkalegustu aðstöðu sem við látum mjög vel af.
Hins vegar eru einnig til ódýrari og jafnvel praktískari og umhverfisvænni lausnir. Ein af þeim er að nota einfaldlega mjólkurfernur undir lífræna ruslið. Þær halda raka vel, er auðvelt að skola og nota aftur og lokast þokkalega vel.
Einfaldlega opnið tómu mjólkurfernuna upp á gátt, komið henni fyrri í ruslaskápnum og setjið lífræna sorpið í hana.
Einfaldara verður það ekki...
Mynd fengin af vef MS
fimmtudagur, 29. maí 2008
Flokkunarstöð - Taka 1
Eins og áður hefur komið fram höfum við lagt mikla vinnu í að finan og útbúa góða flokkunarstöð eins og við viljum kalla það. Lausnin okkar felst í tveimur útdraganlegum sleðum með ruslafötum í frá IKEA. Tvær rennur passa í alla venjulega skápa. Það eru til tvær týpur af ruslafötum: Stórar með skilrúmi eins og sést á myndinni og minni með loki sem voru uppseldar. Við biðum því með að kaupa í aðra rennuna en ruslafatan fyrir lífræna sorpið smellpassar í rennuna svo það gengur fínt. Eins og við var að búast er öll flokkun mun einfaldari núna. Fremst er óflokkanlegt heimilissorp, fyrir innan það eru fernur og umbúðir. Í hinni rennunni er lífræna sorpið. Við notum svo "Blaðberann" frá Fréttablaðinu fyrir Dagblöð og pappír.
Flokkunin er mun auðveldari og skilvirkari. Það eina sem við erum í smá vandræðum með er flokkun á gleri og járni. Skv. flokkunartöflunni og grænu tunnunni á að flokka gler eins og sultukrukkur sér og járn eins og lok af krukkum og niðursuðudósir sér. Við notum sjaldan þessa vöruflokka og erum í hálfgerðu plássleysi. Erum að hugsa um að bæta við einni lítillri fötu og og setja gler og járn þar í aðskilda poka (P.S. Íslenska gámafélagið fer fram á að við flokkum í poka fyrir Grænu tunnuna til að auðvelda flokkunina hjá þeim.). Batterí flokkum við sér í þartilgerðan kassa sem við fengum hjá Hringrás. Við höfum þó verulega dregið úr notkun battería og notum mest hleðslubatterí.
Afsakið gæðin á myndinni en hún er tekin á síma.
þriðjudagur, 27. maí 2008
Hjólað í vinnuna og hjólað í Reykjavík

Átakinu Hjólað í vinnuna lauk fyrir helgi. Ég hjólaði flesta daga og ferðaðist tæpa 200 km. á hjólinu á þessum tíma. Það var sérstaklega gaman að sjá hve mörg hjól voru á götunum og hve fjölmiðlar tóku vel við sér í umræðunni um hjólreiðar sem valkost í samgöngumálum.
Eins og alltaf fannst mér ekki nógu skemmtilegt að taka þátt í þessu átaki, hefði viljað sjá meiri stemningu á stígunum. Sjáum til hvað gerist að ári.
Hjólreiðar eru án efa valkostur fyrir umhverfisþenkjandi fólk, sérstaklega einhverja 6-7 mánuði á ári. Bæjarfélög og vegagerðin verður þó að taka sig á til að þetta geti orðið raunhæfur valkostur fyrir alla. Ágætis umræða var á leiðaraopnu Morgunblaðsins á mánudaginn 26.maí um vöntun á hjólreiðastígum meðfram stofnæðum. En 24 stundir hafa sérstaklega staðið sig vel í umfjöllun um hjólreiðar.
Landssamtök hjólreiðamanna, Fjallahjólaklúbburinn og ÍSÍ eiga hrós skilið fyrir góða og mikla kynningu á málefnum hjólreiðamanna á þessu tímabili.
Lífrænt sorp
Fatan hefur reynst okkur mjög vel. Við verðum ekki vör við neina lykt eða óhreinindi. Við erum þó enn ekki farin að setja kjöt, fisk né mjólurafurðir í fötuna þar sem við viljum koma moltugerðinni betur af stað fyrst. Við forðumst einnig að setja mikið af lauk og sítrusávöxtum. Þetta er samt töluvert magn sem við tæmum ca á 4 daga fresti.
Mælum hiklaust með þessari lausn!
föstudagur, 23. maí 2008
Umhverfisvænir bílaleigubílar og einkabílar
Bílalleigan Hertz hefur nú í nokkurn tíma boðið upp á vistvæna bílaleigubíla, á dögunum fékk fyrirtækið verðskuldaða viðurkenningu frá Orkusetrinu. Þrátt fyrir þessa viðurkenningu og töluvert umtal er lítið að finan um málið á heimasíðu Hertz á Íslandi en mun meira um málið á Hertz.com. Á bókunarsíðunni er samt hægt að bóka "eco friendly" bíl.
Vandamálið við þessa bíla er kanski fyrst og fremst verðið. Það er hægt að fá bíla á ágætis verðum hjá Hertz en hybrid bílarnir kosta í kringum 30 þúsund dagurinn.
Við seldum annan fjöldkyldubílinn í haust og erum búin að vera einbíla síðan. Það hefur gengið það vel að við höfum alverlega hugleytt að selja hinn bílinn (dísel jepplingur) og fá okkur umhverfisvænni og ódýrari bíl og leigja bíl þegar okkur vantar jeppa eða stærri bíl.
Hugmyndin vaknaði þegar við heyrðum af ZipCar þar sem þú gerist hluthafi og hefur aðgang af bílum af öllum stærðum og gerðum fyrir ótrúlega lítinn pening. Ágætis dæmisaga um ágæti þessa fyrirbæris á http://carfree-char.blogspot.com/ þar sem miðaldra kona segir frá því ferli að selja bílinn og gerast Zip-ari. Hún leigir sér smábíl ef hún þarf að skreppa til fjölskyldunar út úr borginni, pallbíl ef hún þarf að kaupa eitthvað í garðinn osfrv.
Það væri gaman að sjá hvort ekki væri hægt að gera einhvers konar fyrirtækjasamning við bílaleigurnar á Íslandi um að leigja bíl reglulega hjá þeim og fá góð afsláttarkjör í staðin. Þetta væri væntanlega ekkrt mál á veturnar en gæti orðið snúið að fá bíl á bónuskjörum á sumrin?

þriðjudagur, 6. maí 2008
Flokkunarstöð!!!
Loksins loksins erum við búin að fá okkur vísi að flokkunarstöð.
Fengum hana í Ikea eftir langa bið. Setjum inn myndir og comment síðar.
Fengum hana í Ikea eftir langa bið. Setjum inn myndir og comment síðar.
mánudagur, 5. maí 2008
Upphitun fyrir Hjólað í vinnuna
Fjallahjólaklúbburinn býður upp á kvöldferðir á Höfuðborgarsvæðinu öll þriðjudagskvöld í sumar. Ferðirnar eru ætlaðar öllum, bæði byrjendum og lengra komnum. Hjólað er um Höfuðborgarsvæðið, t.d. Breiðholtshringurinn, Garðabæjarhringurinn, fuglaskoðun í Grafarvogi og kaffihúsaferð í miðbæinn. Ferðirnar eru opnar öllum og hefjast kl.20.00 við skiptistöðina í Mjódd. Frábær leið til að koma sér í gang og kynnast fólki á hjólum. Fyrsta ferðin er beint í klúbbhús Fjallahjólaklúbbsins þannig að ef eitthvað er að hjólinu er líklega hægt að kippa því í liðinn í klúbbhúsinu.
Hjólað í vinnuna að hefjast
Á miðvikudaginn 7.maí hefst átakið Hjólað í vinnuna.Við hjólum reglulega í vinnuna og það er alveg ótrúlega lítið mál.
Þetta er rétta tækifærið til að prófa. Flestir vinnustaðir eru með i þessari keppni en yfir 7000 manns tóku þátt í fyrra sumar.
Flestir eiga hjól í skúrnum eða þekkja einhvern sem á ónotað hjól, enn fleiri eiga flíspeysu og vindjakka. Meira þarf nú ekki!
Næsta vika verður tileinkuð Hjólað í vinnuna...
sunnudagur, 4. maí 2008
Flokkunarpokar
Á fyrstu þremur 4 mánuðum átaksins höfum við eytt miklum tíma og vinnu við að koma okkur upp "flokkunarstöð", stað á heimilinu þar sem öll flokkun fer fram. Við höfum prófað margt og með mjög misjöfnum árangri. Til að byrja með flokkuðum við í plastpoka svona það helsta og fórum svo með það í grendargáma. Satt best að segja gekk það ekki nógu vel, okkur langaði í skilvirkara og betra kerfi. Um daginn fengum við flokkunarpoka frá Sorpu sem hafa reynst ágætlega. Þetta eru tveir nokkuð stórir pokar. Annar undir dagblöð og tímarit og hinn fyrir sléttan pappír (Fernur, morgunkornsumbúðir osfrv.). Þessir pokar eru á margan hátt mun þægilegri en "Blaðberinn" frá Fréttablaðinu fyrst og fremst þar sem þeir eru stærri og þeir lokast að hluta. Þetta er sérstaklega mikilvægt ef notast er við grendargámana. Eftir að við fengum okkur "endurvinnslutunnu" (Fást frítt á www.flokkum.is næstu tvo mánuðina) hentar "blaðberinn" frá fréttablaðinu betur fyrir blöð og tímarit, hann er svo auðvitað miklu fallegri og hægt að hafa á eldhúsgólfinu án þess að skammast sín! :)
Endurvinnslutunnan hefur gjörbreytt flokkuninni okkar og gert allt miklu auðveldara, við mæalum sterklega með þeim. Sérstaklega þegar í ljós kemur að magnið sem fer í hefðbundna sorpið snarminnkar og því gætum við líklega fengið okkur grænu tunnuna frá Reykjavíkurborg sem er einungis tæmd á tveggja vikna fresti. Þar með væri maður búinn að borga endurvinnslutunnuna upp.
Við erum samt enn að leita okkur að hagkvæmri flokkunarstöð í anda þess sem til er í IKEA en hefur verið uppseld mánuðum saman. Ef þú, lesandi, veist um einhverja sniðuga lausn endilega skildu eftir comment.
þriðjudagur, 29. apríl 2008
Gámaþjónustan, visthópar og sparakstursnámskeið
Gámaþjónustan býður eins og áður sagði upp á endurvinnslutunnu. Þeir bjóða einnig upp á tunnur til moltugerðar, poka fyrir lífrænt sorp ofl.
Það er klárlega hægt að verða sér út um þessa hluti þó svo að það geti verið ansi flókið oft á tíðum.
Rakst á vef Landverndar að hægt væri að skrá sig í visthópa sem Landvernd kennir á 12 vikum hvernig heimili geta orðið vistvæn. Fylgt er skrefunum úr bæklingnum Skref fyrir skref sem er ný-endurútgefinn. Áhugavert... Líklegt að við skráum okkur og leyfum lesendum að fylgjast með!
Annað námskeið sem okkur langar til að benda á er sparakstursnámskeið Heklu, hvet sem flesta til að nýta sér það.

mánudagur, 28. apríl 2008
Umhverfissýning um helgina
Fórum á Dag umhverfisins í Perlunni um helgina, hjólandi auðvitað.
Ekki nógu spennandi sýning og allt of lítið af fólki. Þarna voru þó ágætis básar inn á milli.
Sorpa var að gefa flokkunarpoka, Landssamband hjólreiðamanna bauð upp á hjólaviðgerðir (BÆK Doktor) og Fuglaverndarfélag Íslands gaf góð ráð um garðfugla og fuglavernd.
Íslenska Gámafélagið var að kynna fría endurvinnslutunnu í tvo mánuði sem mér sýndist margir vera að taka.
Landvernd var einnig að kynna nýjan "Skref fyrir skref" bækling! Lítur bara bel út, við notum þennan bækling mikið til að still okkur af og til að fá hugmyndir.
Þarna var einnig verið að kynna ræstingavörur, leikföng, fatnað ofl.
Maður fær það samt alltaf á tilfinninguna að við séum áratugum á eftir Evrópu í umhverfisvernd.

Blogged with the Flock Browser
föstudagur, 25. apríl 2008
Frh. Sparperur
www.orkusetur.is er annars skemmtilegur vefur, við höfum sérstaklega skoðað hann með tilliti til eldsneytiseyðslu.
Blogged with the Flock Browser
fimmtudagur, 24. apríl 2008
Sparperur
Á Grænlandi erum við að stíga okkur fyrstu skref í að nota sparperur. Í upphafi sögðum við að við ætlum okkur hægt í sakirnar og verða græn hægt en vel. Við höfum því undanfarið keypt sparperur í stað hefðbundinna í stað þess að fara í fjárfestingu að skipta öllum út. Reynsla okkar af þessum perum er mjög góð. Þær er hægt að fá í öllum mögulegum stærðum og gerðum, meira að segja í halogen ljós.
Flestar perurnar höfum við keypt í IKEA en einnig í Egg og Húsasmiðjunni.
Perurnar endast margfalt lengur en hefðbundnar perur, 6-15 x lengur, auk þess sem að þær eyða margfalt minna rafmagni.
Perurnar innihalda reyndar skaðleg efni og því ætti að ganga vel frá perum sem brotna og auðvitað að fara með allar perur í endurvinnslu.
Blogged with the Flock Browser
Er hægt að hætta að nota plastpoka?
Í þessu græna ferli okkar fer maður sífellt að spá í fleiri og fleiri hluti. Við höfum t.d. mikið rætt um pappírsmagnið sem kemur inn um lúguna og plastpokanna sem maður tekur í búðum.Við erum búin að vera prófa okkur aðeins áfram með að taka poka með okkur að versla. Við keyptum mjög góða endurnýtanlega poka í IKEA um daginn sem við höfum verið að prófa að nota undanfarið.
Þetta er auðveldara en maður heldur. IKEA pokarnir kosta aðeins 60 kr og borga sig því upp í einni ferð (Bónus selur líka poka en þeir eru svo ljótir að það er ekki hægt að nota þá). Það eiga einnig margir poka úr bómull sem merktir eru búðum, skólum osfrv. Það er einnig hægt að kaupa fína poka á netinu t.d. BAGGU sem hafa fengið töluverða umfjöllun í tískutímaritum.

Við höfum svo verið að prófa okkur áfram með poka í ruslið sem brotna niður í náttúrunni unna úr sterkju. Þá er hægt að fá á nokkrum stöðum í Reykjavík og Plastprent hefur verið að prófa sig áfram í framleiðslu á þannig pokum.
Skelli hérna með ágætis myndbandi sem ég hvet lesendur til að skoða, þetta vekur mann til umhugsunar...
Hlekkir:
http://www.reusablebags.com/
http://baggubag.com/
http://www.envirosax.com/
http://store.chicobag.com/product/original-chicobag
http://www.ecobags.com/
þriðjudagur, 22. apríl 2008
Endurvinnslutunnur í prófun
Íslenska gámafélagið sendu okkur grænu tunnuna sem ég hef fjallað um áður, moltugerðartunnu og ruslafötu og lífræna poka fyrir heimilissorp.
Þetta kom okkur á mikið skrið, við erum strax farin að nota grænu tunnuna. Flokkum núna pappír í pokann sem við fengum frá Fréttablaðinu um helgina. Flokkum fernur í plastpoka sem fara svo í grænu tunnuna. Setjum allt lífrænt í nýju ruslafötuna osfrv.
Við finnum strax mun með tilkomu grænu tunnunar en pappírsmagnið sem fellur frá venjulegu heimili er ótrúlegt. Því er einnig haldið fram að með því að flokka lífrænt sorp í moltugerð minki sorpið um 25-35%. Við stefnum nú á að standa okkur það vel að við getum lagt svörtu ruslatunnunni og fengið græna tunnu frá borginni í staðin. Hún er tæmd á tveggja vikna fresti og er mun ódýrari.
Agnes hjá Íslenska Gámafélaginu benti okkur á tilraun Stykkishólmsbæjar í endurvinnslu. Allir
íbúar bæjarins fengu afhentar þrjár sorptunnur í janúar; eina græna tunnu, eina brúna fyrir lífrænt sorp og eina hefðbundna. Allir bæjarbúar fengu tilsögn í endurvinnslu og eftir fyrstu mánuðinn var 95% þáttaka í verkefninu en skv. könnun á heimasíðunni er 80% þáttaka þessa dagan. Þetta er því hægt!
íbúar bæjarins fengu afhentar þrjár sorptunnur í janúar; eina græna tunnu, eina brúna fyrir lífrænt sorp og eina hefðbundna. Allir bæjarbúar fengu tilsögn í endurvinnslu og eftir fyrstu mánuðinn var 95% þáttaka í verkefninu en skv. könnun á heimasíðunni er 80% þáttaka þessa dagan. Þetta er því hægt!Á vef Stykkishólmsbæjar eru góðir linkar fyrir moltugerðina. Við erum að lesa þessa bæklinga í þaula en við búum því miður ekki við sama lúxus og Stykkishólmsbúar að vera með moltugerðarstöð.
Við munum fjalla reglulega um reynslu okkar af vörunum frá Íslenska gámafélaginu og bendum öðrum fyrirtækjum á að hafa samband ef þau vilja að við prófum vörur þeirra.
föstudagur, 18. apríl 2008
Vöknun í umhverfismálum
Grænland ætlar að reyna að nálgast svona tösku og skrifa nánar um hana.
Endilega skiljið eftir comment ef þið eruð að nota einhverjar sniðugar lausnir við flokkun.
fimmtudagur, 17. apríl 2008
Boðskort á Dag umhverfisins
Hjólað í vinnuna

Var boðaður á skemmtilegan fund með vinnuhópi "Hjólað í vinnuna".
Fékk að fljóta með Fjallahjólaklúbbnum og Landsamtök hjólreiðamanna.
Hjólað í vinnuna er fullkomið tækifæri til að rífa sig upp og prófa vistvænni og heilbrigðari samgöngumáta. Við ætlum að reyna að gera viðburðinn skemmtilegri en áður sem vonandi tekst. Bendi fólki á ótrúlega merkilegt kort sem sýnir hve stuttar vegalengdirnar í Reykjavík eru í raun og veru. ÍSÍ hefur einnig gefið út nettan bækling um hjólreiðar, þar er að finna ágætis æfingaplan og leiðbeiningar.
Hjólað í vinnuna hefst fimmtudaginn 7.maí og stendur til 21.maí.
Í kvöld kl.20.00 fimmtudaginn 17.apríl er viðgerðanámskeið fyrir byrjendur í Fjallahjólaklúbbnum sem er öllum opið, tilvalið að nota það til að fara yfir hjólið fyrir vorið.
Þriðjudagskvöldið 6. maí hefjast svo kvöldferðir Fjallahjólaklúbbsins sem farnar eru alla þriðjudaga í sumar kl.20.00 frá Mjódd, þar eru allir velkomnir.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)