laugardagur, 31. maí 2008

Sniðug lausn fyrir lífrænt sorp


Í upphafi vorum við mikið að velta fyrir okkur hvernig ílát ofl væru best til að flokk sorpið okkar.

Í dag erum við komin með þokkalegustu aðstöðu sem við látum mjög vel af.

Hins vegar eru einnig til ódýrari og jafnvel praktískari og umhverfisvænni lausnir. Ein af þeim er að nota einfaldlega mjólkurfernur undir lífræna ruslið. Þær halda raka vel, er auðvelt að skola og nota aftur og lokast þokkalega vel.

Einfaldlega opnið tómu mjólkurfernuna upp á gátt, komið henni fyrri í ruslaskápnum og setjið lífræna sorpið í hana.

Einfaldara verður það ekki...

Mynd fengin af vef MS

fimmtudagur, 29. maí 2008

Flokkunarstöð - Taka 1

Eins og áður hefur komið fram höfum við lagt mikla vinnu í að finan og útbúa góða flokkunarstöð eins og við viljum kalla það.
Lausnin okkar felst í tveimur útdraganlegum sleðum með ruslafötum í frá IKEA. Tvær rennur passa í alla venjulega skápa. Það eru til tvær týpur af ruslafötum: Stórar með skilrúmi eins og sést á myndinni og minni með loki sem voru uppseldar. Við biðum því með að kaupa í aðra rennuna en ruslafatan fyrir lífræna sorpið smellpassar í rennuna svo það gengur fínt. Eins og við var að búast er öll flokkun mun einfaldari núna. Fremst er óflokkanlegt heimilissorp, fyrir innan það eru fernur og umbúðir. Í hinni rennunni er lífræna sorpið. Við notum svo "Blaðberann" frá Fréttablaðinu fyrir Dagblöð og pappír.
Flokkunin er mun auðveldari og skilvirkari. Það eina sem við erum í smá vandræðum með er flokkun á gleri og járni. Skv. flokkunartöflunni og grænu tunnunni á að flokka gler eins og sultukrukkur sér og járn eins og lok af krukkum og niðursuðudósir sér. Við notum sjaldan þessa vöruflokka og erum í hálfgerðu plássleysi. Erum að hugsa um að bæta við einni lítillri fötu og og setja gler og járn þar í aðskilda poka (P.S. Íslenska gámafélagið fer fram á að við flokkum í poka fyrir Grænu tunnuna til að auðvelda flokkunina hjá þeim.). Batterí flokkum við sér í þartilgerðan kassa sem við fengum hjá Hringrás. Við höfum þó verulega dregið úr notkun battería og notum mest hleðslubatterí.
Afsakið gæðin á myndinni en hún er tekin á síma.

þriðjudagur, 27. maí 2008

Hjólað í vinnuna og hjólað í Reykjavík


Átakinu Hjólað í vinnuna lauk fyrir helgi. Ég hjólaði flesta daga og ferðaðist tæpa 200 km. á hjólinu á þessum tíma. Það var sérstaklega gaman að sjá hve mörg hjól voru á götunum og hve fjölmiðlar tóku vel við sér í umræðunni um hjólreiðar sem valkost í samgöngumálum.

Eins og alltaf fannst mér ekki nógu skemmtilegt að taka þátt í þessu átaki, hefði viljað sjá meiri stemningu á stígunum. Sjáum til hvað gerist að ári.

Hjólreiðar eru án efa valkostur fyrir umhverfisþenkjandi fólk, sérstaklega einhverja 6-7 mánuði á ári. Bæjarfélög og vegagerðin verður þó að taka sig á til að þetta geti orðið raunhæfur valkostur fyrir alla. Ágætis umræða var á leiðaraopnu Morgunblaðsins á mánudaginn 26.maí um vöntun á hjólreiðastígum meðfram stofnæðum. En 24 stundir hafa sérstaklega staðið sig vel í umfjöllun um hjólreiðar.

Landssamtök hjólreiðamanna, Fjallahjólaklúbburinn og ÍSÍ eiga hrós skilið fyrir góða og mikla kynningu á málefnum hjólreiðamanna á þessu tímabili.

Lífrænt sorp

Með moltugerðartunnunni frá Íslenska gámafélaginu fengum við ruslafötu fyrir lífrænt sorp og poka úr maís-sterkju sem brotna niður í moltukassanum. Sambærileg lausn fæst einnig hjá http://www.nattura.is/ og Gámaþjónustunni/Flutningatækni.
Fatan hefur reynst okkur mjög vel. Við verðum ekki vör við neina lykt eða óhreinindi. Við erum þó enn ekki farin að setja kjöt, fisk né mjólurafurðir í fötuna þar sem við viljum koma moltugerðinni betur af stað fyrst. Við forðumst einnig að setja mikið af lauk og sítrusávöxtum. Þetta er samt töluvert magn sem við tæmum ca á 4 daga fresti.
Mælum hiklaust með þessari lausn!

föstudagur, 23. maí 2008

Umhverfisvænir bílaleigubílar og einkabílar

Bílalleigan Hertz hefur nú í nokkurn tíma boðið upp á vistvæna bílaleigubíla, á dögunum fékk fyrirtækið verðskuldaða viðurkenningu frá Orkusetrinu. Þrátt fyrir þessa viðurkenningu og töluvert umtal er lítið að finan um málið á heimasíðu Hertz á Íslandi en mun meira um málið á Hertz.com. Á bókunarsíðunni er samt hægt að bóka "eco friendly" bíl.
Vandamálið við þessa bíla er kanski fyrst og fremst verðið. Það er hægt að fá bíla á ágætis verðum hjá Hertz en hybrid bílarnir kosta í kringum 30 þúsund dagurinn.
Við seldum annan fjöldkyldubílinn í haust og erum búin að vera einbíla síðan. Það hefur gengið það vel að við höfum alverlega hugleytt að selja hinn bílinn (dísel jepplingur) og fá okkur umhverfisvænni og ódýrari bíl og leigja bíl þegar okkur vantar jeppa eða stærri bíl.
Hugmyndin vaknaði þegar við heyrðum af ZipCar þar sem þú gerist hluthafi og hefur aðgang af bílum af öllum stærðum og gerðum fyrir ótrúlega lítinn pening. Ágætis dæmisaga um ágæti þessa fyrirbæris á http://carfree-char.blogspot.com/ þar sem miðaldra kona segir frá því ferli að selja bílinn og gerast Zip-ari. Hún leigir sér smábíl ef hún þarf að skreppa til fjölskyldunar út úr borginni, pallbíl ef hún þarf að kaupa eitthvað í garðinn osfrv.
Það væri gaman að sjá hvort ekki væri hægt að gera einhvers konar fyrirtækjasamning við bílaleigurnar á Íslandi um að leigja bíl reglulega hjá þeim og fá góð afsláttarkjör í staðin. Þetta væri væntanlega ekkrt mál á veturnar en gæti orðið snúið að fá bíl á bónuskjörum á sumrin?

þriðjudagur, 6. maí 2008

Flokkunarstöð!!!

Loksins loksins erum við búin að fá okkur vísi að flokkunarstöð.
Fengum hana í Ikea eftir langa bið. Setjum inn myndir og comment síðar.

mánudagur, 5. maí 2008

Upphitun fyrir Hjólað í vinnuna

Fjallahjólaklúbburinn býður upp á kvöldferðir á Höfuðborgarsvæðinu öll þriðjudagskvöld í sumar. Ferðirnar eru ætlaðar öllum, bæði byrjendum og lengra komnum. Hjólað er um Höfuðborgarsvæðið, t.d. Breiðholtshringurinn, Garðabæjarhringurinn, fuglaskoðun í Grafarvogi og kaffihúsaferð í miðbæinn. Ferðirnar eru opnar öllum og hefjast kl.20.00 við skiptistöðina í Mjódd. Frábær leið til að koma sér í gang og kynnast fólki á hjólum. Fyrsta ferðin er beint í klúbbhús Fjallahjólaklúbbsins þannig að ef eitthvað er að hjólinu er líklega hægt að kippa því í liðinn í klúbbhúsinu.

Hjólað í vinnuna að hefjast

Á miðvikudaginn 7.maí hefst átakið Hjólað í vinnuna.
Við hjólum reglulega í vinnuna og það er alveg ótrúlega lítið mál.
Þetta er rétta tækifærið til að prófa. Flestir vinnustaðir eru með i þessari keppni en yfir 7000 manns tóku þátt í fyrra sumar.
Flestir eiga hjól í skúrnum eða þekkja einhvern sem á ónotað hjól, enn fleiri eiga flíspeysu og vindjakka. Meira þarf nú ekki!
Næsta vika verður tileinkuð Hjólað í vinnuna...

sunnudagur, 4. maí 2008

Flokkunarpokar

Á fyrstu þremur 4 mánuðum átaksins höfum við eytt miklum tíma og vinnu við að koma okkur upp "flokkunarstöð", stað á heimilinu þar sem öll flokkun fer fram. Við höfum prófað margt og með mjög misjöfnum árangri. Til að byrja með flokkuðum við í plastpoka svona það helsta og fórum svo með það í grendargáma. Satt best að segja gekk það ekki nógu vel, okkur langaði í skilvirkara og betra kerfi. Um daginn fengum við flokkunarpoka frá Sorpu sem hafa reynst ágætlega. Þetta eru tveir nokkuð stórir pokar. Annar undir dagblöð og tímarit og hinn fyrir sléttan pappír (Fernur, morgunkornsumbúðir osfrv.). Þessir pokar eru á margan hátt mun þægilegri en "Blaðberinn" frá Fréttablaðinu fyrst og fremst þar sem þeir eru stærri og þeir lokast að hluta. Þetta er sérstaklega mikilvægt ef notast er við grendargámana.
Eftir að við fengum okkur "endurvinnslutunnu" (Fást frítt á www.flokkum.is næstu tvo mánuðina) hentar "blaðberinn" frá fréttablaðinu betur fyrir blöð og tímarit, hann er svo auðvitað miklu fallegri og hægt að hafa á eldhúsgólfinu án þess að skammast sín! :)
Endurvinnslutunnan hefur gjörbreytt flokkuninni okkar og gert allt miklu auðveldara, við mæalum sterklega með þeim. Sérstaklega þegar í ljós kemur að magnið sem fer í hefðbundna sorpið snarminnkar og því gætum við líklega fengið okkur grænu tunnuna frá Reykjavíkurborg sem er einungis tæmd á tveggja vikna fresti. Þar með væri maður búinn að borga endurvinnslutunnuna upp.
Við erum samt enn að leita okkur að hagkvæmri flokkunarstöð í anda þess sem til er í IKEA en hefur verið uppseld mánuðum saman. Ef þú, lesandi, veist um einhverja sniðuga lausn endilega skildu eftir comment.